UPPLÝSINGAR
Persónuverndarstefna
Útgáfa 2026-09-18
Ábyrgðaraðili og stefna GKG
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, kt. 650394-2089, Vífilsstaðavegi, 210 Garðabæ, er ábyrgðaraðili vinnslu vegna eigin bókunarþjónustu. Hafa má samband í gkg@gkg.is eða síma 570 7373.
Þetta yfirlit fjallar um golf.gkg.is og bókunarþjónustu Stundagáttar. Það kemur ekki í stað almennrar persónuverndarstefnu klúbbsins um aðra starfsemi. Lesa persónuverndarstefnu GKG.
Bókanir og félagsmannakjör
Við bókun er unnið með nafn, netfang, símanúmer, valda þjónustu og tíma, auk greiðslustöðu og greiðslumáta. GKG lýsir vinnslu vegna golfhermabókana sem vinnslu til að efna samning. Rétt samskiptanetfang er nauðsynlegt til að senda staðfestingar og auðkenningarkóða.
Til að staðfesta félagsmannakjör og bókunarheimild í Kórnum eru upplýsingar bornar saman við félagaskrá GKG, meðal annars GSÍ-aðildarnúmer og skráðar samskiptaupplýsingar. Upplýsingar um fyrri bókanir og viðskiptavini geta verið fluttar úr eldra bókunarkerfi GKG til að viðhalda þjónustu, fyrirliggjandi bókunum og réttindum. Ef aðild eða verð virðist rangt má óska eftir yfirferð hjá starfsfólki GKG.
Auðkenning og samskipti
Viðskiptavinir geta auðkennt sig með einnota kóða sem sendur er á skráð netfang. Við það er haldið utan um auðkenningarlotu og nauðsynlega tæknilega skráningu. Skráning á samþykki bókunarskilmála tekur til viðkomandi útgáfu og tímasetningar.
Bókunarstaðfestingar, áminningar og skilaboð um greiðslur eða breytingar eru þjónustusamskipti. Samþykki bókunarskilmála felur ekki sjálfkrafa í sér samþykki fyrir markpósti eða valfrjálsri vefrakningu.
Þjónustuaðilar og greiðslur
GKG nýtir Stundagátt við rekstur bókunarkerfisins og Traustpay/PAYSTRAX við greiðslur. Þjónustuaðilar vegna hýsingar, rekstrar, pósts og greiðslna fá þær upplýsingar sem þarf til viðkomandi verks. Greiðsluþjónusta kann jafnframt að vinna upplýsingar vegna eigin lagaskyldna og svikavarna.
Full kortanúmer og öryggiskóðar eru ekki geymd í bókunarkerfi GKG. Greiðslutilvísanir og stöður eru notaðar til að tengja rétta greiðslu við bókun og afgreiða endurgreiðslur.
Vinnsla sem er nauðsynleg til að uppfylla bókhalds- og aðrar lagaskyldur byggist á þeim skyldum. Vinnsla vegna aðgangsöryggis og misnotkunarvarna byggist, eftir því sem við á, á lögmætum hagsmunum af öruggri þjónustu.
Varðveisla og réttindi
Samkvæmt stefnu GKG eru gögn varðveitt á meðan þeirra er þörf. Við mat á varðveislu bókunar- og viðskiptagagna er meðal annars horft til ólokinnar þjónustu, uppgjörs, lagaskyldna og úrlausnar ágreinings.
Einstaklingar geta eftir atvikum óskað aðgangs, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar vinnslu eða flutnings eigin gagna og andmælt vinnslu. Ef vinnsla byggist á samþykki má draga það til baka. Óskum skal beina til GKG. Jafnframt er hægt að kvarta til Persónuverndar. Nánari upplýsingar eru í almennri stefnu GKG.
Sjá einnig upplýsingar um vefkökur.